Íbúð með tveimur svefnherbergjum
Notaleg íbúð með tveimur svefnherbergjum og útsýni út í garð.
Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi og hún rúmar fimm með góðu móti, auk tveggja á svefnsófa í stofunni. Hún er notalega innréttuð og þar er nóg pláss fyrir alla. Eldhúsið er fullbúið og á baðherberginu er opin sturta.
Stofa, borðstofa, tvö svefnherbergi, eldhús og sérbaðherbergi, með útsýni út í garð og yfir Ráðhústorgið. Café Berlin er handan við hornið.
Rúmar 7. Tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu og einbreiðu rúmi, auk svefnsófa í stofu.
Sjálfsinnritun. Leiðbeiningar um innritun berast í tölvupósti nokkrum dögum fyrir komu. Frítt þráðlaust net.
Café Berlin, handan við hornið á Skipagötu, býður upp á morgunverð og hádegisverð. Hægt er að panta fyrir fram í síma 661 0661.
98 m²
Notaleg íbúð með tveimur svefnherbergjum og útsýni út í garð.
Tvö svefnherbergi og eigin svalir.
Fjögur svefnherbergi fyrir allt að tíu gesti.
Acco Town Square Apartments, Ráðhústorg 3, 600 Akureyri